Fimmta barn Hunter Biden, sonar stjórnmálamannsins Joe Biden, er komið í heiminn. Hunter og eiginkonu hans Melissu Cohen fæddist sonur.
Þettar er fyrsta barn þeirra Hunter og Cohen saman en fyrir á Biden fjögur börn. Hann eignaðist þrjár dætur með Kathleen Biden, fyrrverandi eiginkonu sinni. Hann eignaðist einnig eitt barn utan hjónabands árið 2018 en lengi var á huldu hvort hann væri raunverulegur faðir barnsins.
Biden hefur þó neyðst til að gangast við barninu og stóð lengi í stappi við barnsmóður sína um meðlagsgreiðslur en þau hafa nú náð samkomulagi.
Biden og Cohen gengu í það heilaga fyrir rúmlega ári, í maí 2019. Það var aðeins nokkrum mánuðum eftir að Biden sleit sambandi við Hallie Biden, ekkju bróður hans, Beau Biden.