Hálf ævin í samkomubanni

Michael Sheen
Michael Sheen AFP

Breski leikarinn Michael Sheen segir barn sitt Lyra hafi eytt hálfri ævinni í samkomubanni en dóttir hans er átta mánaða gömul. Þegar hún svo loks fékk að fara út fyrir hússins dyr þá hafi það reynst henni mjög yfirþyrmandi upplifun.

„Ég þurfti að sækja sendingu um daginn og ákvað að taka barnið með mér. Ég gekk upp götuna og barnið umturnaðist. Þá áttaði ég mig á því að hún hafi varið hálfri ævinni í samkomubanni og því var þetta mjög yfirþyrmandi upplifun fyrir hana,“ sagði Sheen í viðtali við þáttastjórnandann Lorraine. 

„Hún þekkir ekkert nema húsið okkar innandyra og garðinn okkar. Þannig að við höfum þurft að venja hana á ný við hluti á borð við bílstól og þess háttar smátt og smátt.“ 

Þá segir Sheen það hafi verið erfitt fyrir ömmur og afa að geta ekki hitt barnið. „Hún á inni eitt risastórt faðmlag frá mömmu minni.“

Sheen er í sambúð með sænsku leikkonunni Önnu Lundberg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert