Segist hafa verið lögð í einelti

Victoria Beckham leið illa í skóla.
Victoria Beckham leið illa í skóla. AFP

Victoría Beckham segist hafa verið einmana í skóla og lögð í einelti. Hún hvetur Harper dóttur sína til að passa vel upp á aðra í skólanum sínum og skilja ekki út undan.

„Þegar ég var í skóla var ég mjög ankannalegur unglingur. Ég átti fáa vini og þegar ég lít til baka sé ég að ég var stundum lögð í einelti. Ég vil ekki að neinn annar upplifi það sem ég upplifði. Þegar Harper byrjaði svo í skóla sagði ég við hana að ef hún væri einhvern tímann úti að leika og það væri lítil stúlka alein þá ætti hún að fara að tala við hana og spyrja hvort hún vildi leika. Því ég var eitt sinn þessi litla stúlka,“ sagði Beckham í viðtali við Vogue Australia.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert