Sér ekki eftir að hafa hætt í Bon Jovi

Feðginin Richie og Ava Sambora.
Feðginin Richie og Ava Sambora. Skjáskot Instagram

Richie Sambora fyrrverandi gítarleikari í hljómsveitinni Bon Jovi sér ekki eftir að hafa hætt árið 2013 til þess að sinna betur föðurhlutverkinu. 

Jon Bon Jovi söngvari hljómsveitarinnar gagnrýndi Sambora á dögunum fyrir að hafa hætt og sagði hann ekki hafa mál sín á hreinu. „Það líður ekki sá dagur sem ég óska þess ekki að hann væri með líf sitt á hreinu og væri enn með okkur í hljómsveitinni,“ sagði Bon Jovi.

Sambora segist hafa hætt í hljómsveitinni til þess að sinna betur dóttur sinni Övu sem hann á með leikkonunni Heather Locklear. Sambora og Locklear skildu árið 2007 og í kjölfarið glímdi Locklear við mikla fíkn og áhættuhegðun.

Heimildarmaður nærri Sambora segir hann ekki sjá eftir neinu. „Richie fórnaði miklu til þess að vera til staðar fyrir dóttur sína þegar hún var ung og þarfnaðist hans mikið. Hann er mjög stoltur af því hversu vel henni gengur í dag. Það reyndist rétt ákvörðun að gefa framann upp á bátinn og vera 100% til staðar sem faðir. Síðustu ár hafa verið þau bestu í lífi hans. Að fá að fylgjast með dóttur sinni vaxa úr grasi er ómetanlegt.“

Ava Sambora naut góðs af athygli föður síns en móðir …
Ava Sambora naut góðs af athygli föður síns en móðir hennar glímdi við mikla erfiðleika í einkalífinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert