Dóttir Arnars Gauta og Berglindar komin með nafn

Arnar Gauti Sverrisson og Berglind Sif Valdemarsdóttir.
Arnar Gauti Sverrisson og Berglind Sif Valdemarsdóttir.

Kærustuparið Arnar Gauti Sverrisson og Berglind Sif Valdemarsdóttir eignuðust dóttur 13. ágúst. Í dag fékk hún nafn sem var vel við hæfi því Arnar Gauti á afmæli í dag. Það var því tvöfalt tilefni til að fagna. 

Stúlkan fékk nafnið Viktoría Ivy og er hún Arnarsdóttir. 

Arnar Gauti er á fullri ferð þessa dagana með heimilisþætti sína, Sir Arnar Gauti á Hringbraut, en í þáttunum fylgist hann með framkvæmdum hjá fólki, gefur góð ráð og tekur púlsinn á því sem er að gerast í heimilisheiminum. Berglind Sif er kennari og er þessa stundina í fæðingarorlofi. 

Guðni Már Harðarson prestur skírði stúlkuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert