Sýnir aðhaldsbuxurnar fjórum mánuðum eftir fæðingu

Katy Perry sýndi aðahaldsbuxurnar á samfélagsmiðlum sínum.
Katy Perry sýndi aðahaldsbuxurnar á samfélagsmiðlum sínum. Skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Katy Perry eignaðist sitt fyrsta barn í ágúst með unnusta sínum, leikaranum Orlando Bloom. Hún sýndi fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum leynivopn sitt þessa dagana en það eru aðhaldsbuxur. 

Í myndbandinu sem Perry deildi á samfélagsmiðlum má sjá hana ganga í átt að myndavélinni í blárri kápu með hendur í vösum. Þegar Perry var komin nálægt myndavélinni stoppaði hún og lyfti kápunni og sýndi þar með aðhaldsbuxurnar. 

Perry er dómari í sjónvarpsþáttunum vinsælu American Idol. Hún byrjaði að vinna aftur í október aðeins tveimur mánuðum eftir að dóttir hennar Daisy kom í heiminn. 

View this post on Instagram

A post shared by KATY PERRY (@katyperry)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert