Clooney platar börnin á jólunum

Það er líf og fjör á heimili Amal og George …
Það er líf og fjör á heimili Amal og George Clooney. mbl.is/AFP

George Clooney segist plata börnin á jólunum til þess að fá þau til að haga sér vel. Clooney á þriggja ára tvíbura, Alexander og Ellu. 

Í viðtali við spjallþáttastjórnandann Stephen Colbert sagðist Clooney hafa fundið leið til þess að fá þau til að haga sér betur. „Þegar þau eru sofandi á morgnana (þau sofa í sama herbergi) og eru byrjuð að rumska og rífast hvort í öðru stend ég fyrir utan dyrnar og þykist vera að tala við jólasveininn og segja honum að ég sé að reyna að hjálpa börnunum að vera þæg fyrir hann. Þá heyrist í börnunum að þau ætli að vera þæg,“ segir Clooney, sem er að reyna að útfæra leiðir til þess að nota þessa aðferð á páskunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert