Sonur Johnson hárprúður eins og pabbi

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands. AFP

Átta mánaða syni Boris Johnsons, Wilfred, hefur hingað til verið haldið utan sviðsljóss fjölmiðla með góðum árangri. Það var því mikið fagnaðarefni þegar almenningur fékk loks innsýn í líf Wilfreds. Sjá má að sonurinn hefur erft fagra lokka föður síns.

Á twittersíðu The Together Project er birt mynd af Wilfred skreyta mynd sem eldri borgarinn Betty hafði sent forsætisráðherranum Boris Johnson. Wilfred lauk við myndina með því að teikna horn á hreindýrið. Með þessu átaki er börnum gefið tækifæri til þess að senda skreyttar myndir til eldri borgara. Er þetta liður í átaki til að minnka einsemd eldri borgaranna í kjölfar kórónuveirunnar og efla samskipti ólíkra kynslóða.

Sagt er að Wilfred sé kominn með tvær tennur og að besti vinur hans sé hundurin Dilyn sem foreldrar hans björguðu fyrir skemmstu.

Drengurinn Wilfred er átta mánaða og mjög hárprúður.
Drengurinn Wilfred er átta mánaða og mjög hárprúður. Skjáskot/Twitter



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert