Ívar Guðmundsson útvarpsmaður á Bylgjunni, heilsuvöruframleiðandi og einkaþjálfari er orðinn afi. Dóttir Ívars, Anna Líney, og sambýlismaður hennar, Kristófer Finnsson, eignuðust sitt fyrsta barn saman í byrjun janúar.
Ívar er stoltur í nýja hlutverkinu og birti mynd af sér með afastráknum á Instagram um helgina. „Það er mikil hamingja sem fylgir því að verða afi,“ skrifaði Ívar á Instagram og birti mynd af sér með drenginn í fanginu.
Barnavefur mbl.is óskar fjölskyldunni innilega til hamingju.