Ólétt og strax farin að hugsa um annað barn

Mike og Lauren Sorentino langar strax í fleiri börn.
Mike og Lauren Sorentino langar strax í fleiri börn. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Mike Sorrentino og eiginkona hans Lauren Sorrentino eiga von á sínu fyrsta barni á vormánuðum. Þau eru þó heldur betur farin að hugsa lengra fram í framtíðina og stefna á að eignast fleiri börn. 

Sorrentino-hjónin hafa verið gift frá árinu 2018. „Þetta er svo fyndið. Hún segir bara „Elskan, þegar við erum búin að eignast þetta fyrsta barn þá ætlum við að eignast annað,“ sagði Mike í stiklu fyrir raunveruleikaþættina Jersey Shore Family Vacation. 

Hann segist hafa beðið hana að róa sig aðeins. „En ég held samt að hún hafi rétt fyrir sér. Okkur langar án efa í um þrjú börn, held ég,“ sagði Mike. 

„Ég held þrjú, en ég veit ekki. Það er frekar mikið áreiti. Við ólumst bæði upp í stórum fjölskyldum. Hann er einn af fjórum og ég er ein af fjórum, en það er mikið. Þannig að ég held það verði pottþétt fleiri en eitt og eins og allir segja, við ætlum að koma þessu „smábarnaskeiði“ frá,“ sagði Lauren í stiklunni. 

Hjónin misstu fóstur árið 2019, um ári eftir að þau gengu í það heilaga. Þau voru því mjög hissa á að þau ættu aftur von á barni á síðasta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert