Þekkti mömmu sína ekki með dökkt hár

Katherine Heigl og sonur hennar Joshua.
Katherine Heigl og sonur hennar Joshua. Skjáskot/Instagram

Joshua, sonur leikkonunnar Katherine Heigl, þekkti ekki mömmu sína þegar hún þurfti að lita hár sitt dökkt fyrir þætti sem hún er að leika í. Joshua, sem er fjögurra ára í dag, var tveggja ára þegar atvikið átti sér stað.

„Ég elska að lita á mér hárið og það ruglar börnin mín mjög mikið,“ sagði leikkonan í viðtali í spjallþættinum The Talk. Heigl á þrjú börn, dæturnar Naleigh 12 ára og Adalaide átta ára og svo soninn Joshua.

„Hann vissi ekki einu sinni hver ég var. En ég held hann hafi elskað brúna hárið samt,“ sagði Heigl. Þegar hún fór aftur yfir í sinn náttúrulega ljósa hárlit spurði sonurinn mikið um brúna hárið. 

Hún fer nú með hlutverk í þáttunum Firefly Lane sem komu nýlega á Netflix og þar skartar Heigl einmitt dökkbrúnu hári.

Katherine Heigl er venjulega með ljóst hár.
Katherine Heigl er venjulega með ljóst hár. mbl.is/Cover Media
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert