Tónlistarkonan Katy Perry lýsti yfir aðdáun sinni á mæðrum í spjallþætti í vikunni. Perry eignaðist sjálf sitt fyrsta barn í ágúst með unnusta sínum Orlando Bloom. Hún fór að vinna aðeins fimm vikum eftir fæðinguna og segir það hafa reynt á.
Perry segir dóttur sína í meyjarmerkinu og mikið fyrir að vera í rútínu.
„Við byrjuðum í tökum á American Idol-þáttaröð fjórum eða fimm vikum eftir fæðinguna. Ég skipulagði það ekki þannig. En það var bara: „Ó, guð.“ Þetta var svo mikið, þið vitið. Að fæða barnið, fara aftur í vinnuna og vera með barnið á brjósti, guð minn góður. Er þetta það sem konur gera? Guð minn góður,“ sagði Perry.
Spjallþáttastjórnandinn Kelly Ripa vissi hvað Perry átti við enda er hún sjálf þriggja barna móðir. „Þetta er svo magnað. Það er eins og þú trúir því ekki hvað líkami þinn er fær um,“ sagði Riba.
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Perry.