Leikkonan Halle Berry fagnar 13 ára afmæli dóttur sinnar Nöhlu og í tilefni af því birtir hún mynd af sér og dótturinni en almennt er Berry ekki mikið að birta myndir af börnunum sínum.
Við myndina skrifar hún: „Það er sama hversu oft ég segist elska hana, ég elska hana svo miklu meira. Til hamingju með afmælið!“
Berry á Nöhlu með fyrirsætunni Gabriel Aubry. Hún þarf að greiða honum miklar fjárhæðir í meðlag með barninu. Eitt sinn tjáði hún sig um það í athugasemd við instagramfærslu.
„Ég hef verið að borga honum meðlag með barninu í rúman áratug. Mér finnst að ef kona eða karl þarf að borga styrk sem er mun meira en hinn aðilinn þarf til þess að styðja við barnið þá er það rangt. Ég skil að sumir foreldrar þurfi hjálp en á þessum tímum eiga bæði karlar og konur að taka fjárhagslega ábyrgð á börnunum sínum og vinna hörðum höndum með öllum ráðum og dáð. Eins og lögin eru í dag getur fólk notfært sér börnin til þess að geta lifað lífsstíl sem er langt umfram það sem barnið þarf og það er rangt,“ sagði Berry.