Þegar dagurinn snýst um fermingarbarnið

Katrín Katla Guðmundsdóttir fermdist á síðasta ári.
Katrín Katla Guðmundsdóttir fermdist á síðasta ári. mbl.is/Heida HB Photography

Katrín Katla Guðmundsdóttir á góðar minningar frá fermingardegi sínum. Hún segir æðislegt að eiga einn dag þar sem allt snýst um mann sjálfan og segir að þá þurfi maður bara að kunna að njóta sín.

Hún fermdist í Neskirkju þann 6. september árið 2020.

„Fermingin var æðisleg, en ætli mér hafi ekki samt fundist veisluhöldin skemmtilegust. Vegna faraldursins voru samt ekki alveg nógu margir sem mættu.“

Bauð upp á góðar kökur

Hvað var boðið upp á í veislunni?

„Það var bara allt á boðstólum sem er uppáhaldsmaturinn minn. Hamborgarar, franskar og síðan góðar kökur.“

Katrín Katla segir að það hafi ekki verið tónlistaratriði eða skemmtiatriði í veislunni, en að samveran hafi verið mjög góð og allir hafi talað saman.

„Svo fór ég í förðun og hárgreiðslu sem var mjög skemmtilegt að upplifa. Ég fór í myndatöku og gerði allt sem maður gerir á draumadeginum sínum.“

Hvar keyptir þú fermingarkjólinn?

„Við keyptum hann í Gallerí 17.“

Fermingakjóllinn var keyptur í Gallerí 17.
Fermingakjóllinn var keyptur í Gallerí 17. mbl.is/Heida HB Photography

Fallegir skartgripir gleðja

Hvað er á óskalista fermingarbarna um þessar mundir?

„Ég held að við kunnum öll að meta að fá peninga og skartgripi, svo fékk ég líka tölvu sem ég var mjög ánægð með.

Skartgripirnir sem ég er hrifin af eru nettir skartgripir bæði úr silfri og úr gulli.“

Það sem Katrín Katla kann hvað mest að meta frá veislunni í fyrra var að hitta fjölskyldu sína og vini.

„Já, ætli það sé ekki ráðið sem mig langar að gefa fermingarbörnum á þessu ári; bara að njóta dagsins og að hafa gaman með fjölskyldunni, svona loksins þegar maður hefur tök á að hitta alla aftur.“

Katrín Katla fór í förðun og hárgreiðslu sem henni fannst …
Katrín Katla fór í förðun og hárgreiðslu sem henni fannst skemmtilegt að upplifa. mbl.is/Heida HB Photography

Hefur áhuga á fimleikum

Katrín Katla segir ekki eitthvað eitt standa upp úr þegar kemur að fermingarfræðslunni, nema bara að kristin trú er áhugaverð og án efa gott að hafa Guð með sér í liði í lífinu.

Hún hefur mikinn áhuga á fimleikum sem hún æfir og veit síðan fátt skemmtilegra en að vera með vinum sínum á milli æfinga.

Hún er ánægð með félagslífið í Hagaskóla og getur hiklaust mælt með þeim skóla fyrir alla.

Eitt af því sem tilheyrði draumadeginum var að fara í …
Eitt af því sem tilheyrði draumadeginum var að fara í ljósmyndatöku að mati fermingarbarnsins. mbl.is/Heida HB Photography
Heida HB er ljósmyndarinn sem varð fyrir valinu á fermingardaginn.
Heida HB er ljósmyndarinn sem varð fyrir valinu á fermingardaginn. mbl.is/Heida HB Photography
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert