Var ólétt í englagöngunni

Heidi Klum árið 2003 ólétt af dóttur sinni.
Heidi Klum árið 2003 ólétt af dóttur sinni. REUTERS

Ofurfyrirsætan Heidi Klum óskaði frumburði sínum til hamingju með 17 ára afmælið á dögunum. Hún birti í kjölfarið myndband af sér í nærfatatískusýningu en þegar horft er vel má sjá móta fyrir litlum einstaklingi í maga Klum. 

„Ég gekk ekki ein niður tískupallinn þarna,“ skrifaði Klum á Instagram og deildi myndskeiði af tískusýningu undirfatarisans Victoria's Secret frá árinu 2003. Hún var þarna komin fjóra mánuði á leið með dóttur sína. 

„Ég elskaði þig áður en þú fæddist og ég mun halda áfram að elska þig eftir að ég loka augunum í hinsta sinn,“ skrifaði America's Got Talent-dómarinn til dóttur sinnar. 

Klum tilkynnti í desember 2003 að hún ætti von á barni og stuttu seinna hætti hún með ítalska viðskiptamanninum Flavio Briatore. Fyrirsætan var byrjuð með tónlistarmanninum Seal þegar Leni fæddist og var hann viðstaddur fæðinguna. Seal ættleiddi svo Leni árið 2009 en Seal og Klum tilkynntu skilnað sinn árið 2012. 

View this post on Instagram

A post shared by Heidi Klum (@heidiklum)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert