Söngkona og fótboltastjarna fjölga sér

Alex Oxlade-Chamberlain og Perrie Edwards eiga von á sínu fyrsta …
Alex Oxlade-Chamberlain og Perrie Edwards eiga von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, og söngkonan Perrie Edwards eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið sagði frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum í vikunni. 

Edwards er hvað þekktust fyrir að vera liðskona bresku hljómsveitarinnar Little Mix. Önnur liðskona sveitarinnar, Leigh-Anne Pinnock, greindi frá því í síðustu viku að hún ætti einnig von á barni með unnusta sínum Andre Gray. 

Oxlade-Chamberlain og Edwards hafa verið saman síðan 2016 en hún var áður í sambandi með tónlistarmanninum Zayn Malik. 

Stjörnuparið opinberaði samband sitt á samfélagsmiðlum í febrúar 2017 þegar þau birtu mynd af sér að kyssast fyrir framan Eiffel-turninn í París. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert