Archie þykir líkjast móður sinni

Meghan þegar hún var lítil og Archie í rólunni í …
Meghan þegar hún var lítil og Archie í rólunni í þættinum The Mee You Can't See. Samsett mynd

Aðdáendum bresku konungsfjölskyldunnar þykir Archie, sonur Harrys Bretaprins og Meghan hertogaynju af Sussex, líkjast móður sinni mikið. Myndband af Archie róla sér birtist í þættinum The Me You Can't See þar sem faðir hans var til viðtals. 

Einn aðdáandi birti mynd á Twitter af Meghan sem barni og bar hana saman við skjáskot af Archie í rólunni. 

Harry og Meghan hafa ekki sýnt margar myndir af Archie, sérstaklega ekki síðan þau sögðu skilið við konungsfjölskylduna. Því hafa aðdáendur gripið hvert tækifæri sem mynd birtist af Archie til að velta fyrir sér hverjum hann líkist mest.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert