Svona klæðast franskar pabbastelpur

Fyrirsætan Jules Trass með dóttur sinni Paola í París.
Fyrirsætan Jules Trass með dóttur sinni Paola í París.

Þeir sem elska fallegan barnafatnað ættu að fylgjast með fyrirsætunni Jules Trass og dóttur hans Paolu. Trass og fjölskylda eru búsett í tískuborginni París og er auðséð á ljósmyndunum hans að uppáhaldsfatnaðurinn á dótturina fæst hjá Tartine et Chocolat-tískuhúsinu í París. Þeir hafa selt vandaðan barnafatnað frá árinu 1977. 


Að undanförnu hefur fræga fólkið verið að láta taka ljósmyndir af sér í fatnaði í stíl við börnin sín. Trass gefur þeim ekkert eftir og er með skemmtilegar hugmyndir að því hvernig pabbinn getur klætt sig upp á í stíl við stelpuna sína. Paola er vanalega brosmild á myndunum og kann að meta athyglina sem hún fær með pabba sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert