Sonur Viktoríu og Sóla kominn með nafn

Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eru búin að gefa nýjasta …
Viktoría Hermannsdóttir og Sóli Hólm eru búin að gefa nýjasta fjölskyldumeðlimnum nafn.

Fjölmiðlaparið Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm Sólmundsson gáfu syni sínum nafn í dag. Litli drengurinn fékk nafnið Hermann Flóki. 

Viktoría sagði frá nafngiftinni á Instagram í dag. „Elsku litli strákurinn okkar fékk nafnið sitt í dag og heitir Hermann Flóki. Millinafnið er út í loftið en Hermann er í höfuðuð á pabba mínum sem er bestur. Sá stutti virðist vera alsæll með nafnið og svaf af sér athöfnina og veisluhöldin,“ skrifaði Viktoría á Instagram. 

Hermann Flóki er yngstur fimm systkina en fyrir áttu Viktoría og Sóli börnin Matthías, Birtu, Baldvin og Hólmfríði. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nöfnin!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert