Níu ára fékk að lita á sér hárið

Penelope Disick skartar nú rauðu hári.
Penelope Disick skartar nú rauðu hári. Skjáskot/Instagram

Hin níu ára gamla Penelope Disick frumsýndi rautt hár á instagramsíðu móður sinnar Kourtney Kardashian í þessari viku. Penelope er dóttir Kardashian og Scotts Disicks en þau hafa ekki verið hrædd við að leyfa börnum sínum að prófa sig áfram með mismunandi hárgreiðslu. 

Kardashian birti einnig myndband af litunarferlinu á Instagram en greindi ekki frá því hvort hinn skærrauði litur væri varanlegur eða ekki. 

Kardashian sjálf breytti nýlega til og klippti sig stutt eftir að hafa verið með sítt hár um árabil. Faðir Penelope hefur líka verið duglegur að prófa sig áfram og skartaði skærbleiku hári fyrr á þessu ári. 

Frá lituninni.
Frá lituninni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert