Börn Emmy-verðlauna leikarans Zach Galifianakis hafa ekki hugmynd um að pabbi þeirra sé heimsfrægur leikari. Fyrir þeim er hann bara pabbi, og kabbski bókasafnsvörður.
Galifianakis og tvo syni með eiginkonu sinni Quinn Lundberg og eru þeir fjögurra og sjö ára.
„Krakkarnir halda að ég sé bókasafnsvörður einhverstaðar. Þau vita ekki einu sinni hvar. Þau halda að ég sé aðstoðar bókasafnsvörður einhverstaðar,“ sagði Galifianakis í viðtali við Entertainment Tonight.
Galifianakis er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í Hangover kvikmyndunum, Due Date, The Campaign, Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance) auk þess sem hann hefur talsett fjölda teiknimynda.