Tónlistarkonan Karin Arnhildardóttir og grafíski hönnuðurinn Stefán Hjálmtýr Stefánsson eiga von á barni. Karin, betur þekkt undir tónlistarnafni sínu Young Karin, greindi frá gleðifréttunum á Instagram í gær.
Birti hún mynd af kúlunni og skrifaði að hún væri komin fimmtán vikur á leið.
Karin hefur gefið út nokkur lög undanfarin ár og einnig sungið inn á fjölda laga með öðrum tónlistarmönnum.
Barnavefurinn óskar þeim Karin og Stefáni innilega til hamingju!