Tónlistarkonan Elísabet Ormslev og kærasti hennar Sindri Þór Kárason eignuðust son hinn 11. desember síðastliðinn. Frá þessu greindi Elísabet í gær.
„Tíu fingur, tíu tær og alveg fullkominn. Velkominn í heiminn draumadrengur,“ skrifaði Elísabet á Instagram.
Drengurinn litli er fyrsta barn foreldra sinna sem fundu ástina í örmum hvort annars á síðasta ári.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!