Blaðaljósmyndarar að gera hana brjálaða

Leikkonan Diane Kruger.
Leikkonan Diane Kruger. AFP

Leikkonan Diane Kruger gefur ekki tommu eftir þegar kemur að einkalífi barna sinna. Hún segir blaðaljósmyndara vera að gera hana brjálaða og hikar ekki við að öskra yfir götuna ef hún kemur auga á einn slíkann vera að taka mynd af börnum hennar og Norman Reedus. 

„Ég hata þetta og þeir eru að gera mig brjálaða,“ sagði Kruger í viðtali við The Sunday Times. Hún og Reedus eiga eina dóttur saman sem fæddist í heiminn í nóvember 2018. 

Hafa þau lagt sig mikið fram við að halda henni frá sviðsljósinu, hafa aldrei greint frá nafni hennar og aldrei sýnt andlit hennar á samfélagsmiðlum. 

„Ég hef næstum því lamið nokkra þeirra, þegar þeir eru að taka myndir af mér með barninu mínu. Ef ég sé þá, og þeir eru nógu hugrakkir til að hypja sig ekki, ég er sko 100% klikkaða konan sem öskrar yfir götuna,“ sagði Kruger. 

Árið 2019 bað Kruger vinsamlegast um frið fyrir dóttur sína á samfélagsmiðlum. Hún bað aðdáendur sína um að endurbirta ekki blaðaljósmyndir af henni og dóttur hennar, því myndirnar væru ekki teknar með hennar leyfi. 

View this post on Instagram

A post shared by Diane Kruger (@dianekruger)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert