Beraði óléttubumbuna á tískupöllunum

Stórglæsileg Adriana Lima.
Stórglæsileg Adriana Lima. AFP

Ofurfyrirsætan Adriana Lima vakti mikla athygli á dögunum þegar hún gekk tískupallana með bera bumbuna og sýndi það nýjasta úr smiðju tískurisans Alexanders Wangs. 

Hin brasilíska Adriana Lima er ófrísk af sínu fyrsta barni og lætur hún óléttuna ekki stoppa sig í að halda áfram að starfa sem fyrirsæta. Lima er best þekkt sem Victoria's secret-engill en hún starfaði sem fyrirsæta fyrir nærfatahönnuðinn á árunum 1999-2018.

Tískusýning Alexanders Wangs, Fortune City, fór fram í Los Angeles sem kann að vera borg örlaganna fyrir marga. Lima vakti eftirtekt þegar hún gekk pallana í svörtum pífukjól sem var ber um kviðinn og rammaði þar með inn óléttubumbuna. Við kjólinn klæddist hún uppháum stígvélum sem náðu henni upp að lærum. Fréttamiðillinn Daily Mail greindi frá. 

Óljóst er hvort Alexander Wang hafi í hyggju að nýta tækifærið og hanna meðgöngufatnað með sama sniði í náinni framtíð. Lima átti í það minnsta ekki í vandræðum með að klæðast kjólnum þrátt fyrir að vera barnshafandi.   

Óléttubumba Adriönu Limu stal senunni á tískusýningu Alexanders Wangs.
Óléttubumba Adriönu Limu stal senunni á tískusýningu Alexanders Wangs. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert