Hertogahjónin af Sussex, Meghan og Harry, dvelja nú í Hollandi til þess að vera viðstödd Invictus-leikanna. Börnin þeirra tvö urðu eftir í Bandaríkjunum þar sem fjölskyldan býr. Foreldrarnir sakna barnanna mjög mikið.
Frumburðurinn Arichie verður þriggja ára í maí en dóttirin Lili verður eins árs í júní. Meghan viðurkenndi að hún saknaði þeirra þegar hún las fyrir börn á lokuðum viðburði í Hollandi. „Meghan spjallaði mikið og sagði mér að hún saknaði barnanna sinna,“ sagði fyrrverandi hermaðurinn James Stride í viðtali við Daily Mail. „Hún sagðist vilja vera með börnum þar sem hún saknaði sinna barna.“
Börnin eru líka ofarlega í huga Harrys í Hollandi.
„Það er efst í huga hennar að halda í við bróður sinn, hún tók fyrsta skrefið bara fyrir nokkrum dögum,“ sagði Harry í viðtali við People og sagðist vera stoltur pabbi.
Talið er að hjónin hafa aldrei dvalið jafn lengi frá báðum börnunum sínum. Archie og Lili urðu eftir heima í Montecito í Kaliforníu.