Breska fjölmiðlakonan Helen Skelton tilkynnti á Instagram í vikunni að hún og eiginmaður hennar til níu ára, Richie Myler, væru að skilja. Aðeins fjórum mánuðum eftir að þau tóku á móti sínu þriðja barni.
Tilkynning Skelton um endi hjónabandsins virtist koma eins og þruma úr heiðskíru lofti en aðdáendur hjónanna bjuggust við einhverju allt öðru en skilnaði.
„Mér þykir mjög leiðinlegt að segja ykkur að frá því að við Richie erum ekki hjón lengur. Hann hefur nú þegar yfirgefið heimilið okkar. Við munum reyna að gera okkar besta til að geta alið upp litlu börnin okkar í sameiningu,“ sagði Skelton í áhrifaríkri færslunni en gaf þó ekki upp ástæður fyrir skilnaðinum. Fréttamiðillinn The Sun greindi frá.
Þau Skelton og Richie hafa verið gift frá árinu 2013 og eiga saman börnin þrjú; Ernie, sex ára, Louis, fimm ára og Elsie Kate, fjögurra mánaða.