Bangsaspítalinn opnar aftur

Bangsaspítalinn opnar aftur um helgina eftir tveggja ára hlé.
Bangsaspítalinn opnar aftur um helgina eftir tveggja ára hlé. mbl.is/Hari

Bangsaspítalinn opnar aftur á laugardaginn eftir tveggja ára hlé vegna heimsfaraldursins. Öllum börnum ásamt foreldrum eða forráðamönnum er boðið að koma með slasaða eða veika bangsa á þrjár heilsugæslustöðvar milli klukkan 10 og 16. 

Tilgangurinn með bangsaspítalanum er tvíþættur, annars vegar að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn. 

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eiginn bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót). Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Bangsaspítalinn verður opinn í Heilsugæslunni Efstaleiti, Heilsugæslunni Höfða og Heilsugæslunni Sólvangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert