„Þú gerir mömmu mína hamingjusama“

Systkinin Penelope og Reign í sundlaug föður síns, Scotts Disicks.
Systkinin Penelope og Reign í sundlaug föður síns, Scotts Disicks. Samsett mynd

Trommuleikarinn Travis Barker fékk fallegar kveðjur frá tveimur yngstu stjúpbörnum sínum í tilefni hins bandaríska feðradags sem haldinn var hátíðlegur um síðustu helgi. Barker deildi myndum á Instagram af kortum sem börn eiginkonu hans, Kourtney Kardashians, höfðu handskrifað og skreytt honum til heiðurs.

„Þú ert svo ljúfur og góður. Þú ert svo æðislegur og bestur. Þú ert besti trommuleikari í heimi og þú gerir mömmu mína hamingjusama. Gleðilegan feðradag,“ skrifaði níu ára dóttir Kardashians, Penelope, til stjúppabba síns og verður það að viðurkennast að Barker er heppinn með stjúpbörn.

Yngsta barn Kardashians, Reign, sjö ára, hafði sína kveðju til Barkers með heldur einföldu sniði. „Elsku Travis. Gleðilegan feðradag,“ skrifaði hann og teiknaði sæta mynd af mömmu sinni og stjúpföður haldast í hendur með eldrautt hjarta á milli sín. Fréttamiðillinn People greindi frá. 

Kourtney Kardashian á þrjú börn með fyrrverandi kærasta sínum, Scott Disick. Ásamt Penelope og Reign eiga þau einnig soninn Mason saman, sem er tólf ára gamall. Þá á Barker einnig þrjú börn úr fyrri samböndum; Atiana, 23 ára, Landon, 18 ára og Alabama, 16 ára. Þau mættu öll á heimili föður síns og Kardashians til að fagna feðrafeginum um nýliðna helgi.   

Kortið frá Penelope.
Kortið frá Penelope. Skjáskot/Instagram
Kortið frá Reign.
Kortið frá Reign. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert