Baltasar og Anna gáfu dótturinni nafn

Baltasar Breki Samper og Anna Katrín Einarsdóttir eru búin að …
Baltasar Breki Samper og Anna Katrín Einarsdóttir eru búin að gefa dóttur sinni nafn. Ljósmynd/Jörri

Leikarinn Baltasar Breki Samper og listakonan Anna Katrín Einarsdóttir hafa gefið dóttur sinni nafn. Litla stúlkan fékk nafnið Úlfey Ronja Samper. 

Baltasar og Anna hafa verið saman um nokkurra ára skeið en þau trúlofuðu sig árið 2020. Úlfey litla kom í heiminn í byrjun apríl síðastliðinn og er fyrsta barn foreldra sinna saman. 

Baltasar er sonur leikstjórans Baltasars Kormáks Baltasarssonar og hefur unnið í fjölda verkefna föðurs síns en einnig getið sér gott orð í þáttum á borð við Chernobyl.

Anna Katrín, sem er bet­ur þekkt sem Anna Kein í lista­heim­in­um, hef­ur feng­ist við leik­stjórn leik­rita á síðustu árum. Hún út­skrifaðist frá Lista­há­skóla Íslands 2016.

Barnavefurinn óskar þeim til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert