Fóru í 10 daga húsbílaferð með börnin

Mila Kunis og Ashton Kutcher.
Mila Kunis og Ashton Kutcher. Skjáskot af Daily Mail

Leikarahjónin Ashton Kutcher og Mila Kunis fóru með börnin sín í tíu daga bílaferðalag. Kutcher segir að ef hann fengi að ráða þá færu börnin ekkert aftur í skólann því hann skemmti sér svo vel með þau. Þau eiga tvö börn, Dimitri er fimm ára og Wyatt sjö ára.

„Við fórum í húsbíl í tíu daga ferð og fórum í þjóðgarði í kringum landið. Að vera með börnunum sínum allan sólahringin var æðislegt, þetta var samt líka vinna,“ sagði hann við People.

Hann segir að allir þurfi líka að vinna, svo það gangi ekki að leika sér með börnunum sínum allan daginn alla daga. Hann segist einnig vera mjög þakklátur fyrir kennara og segir að þeir geti kennt börnunum hans mun betur en hann sjálfur.   

View this post on Instagram

A post shared by Ashton Kutcher (@aplusk)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert