Tilkynnti óléttuna á 38 ára afmælinu

Gina Rodriguez og Joe LoCicero eiga von á sínu fyrsta …
Gina Rodriguez og Joe LoCicero eiga von á sínu fyrsta barni. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Gina Rodriguez á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum, Joe LoCicero. Hún tilkynnti óléttuna með fallegu myndbandi á Instagram á afmælisdegi sínum, en hún varð 38 ára hinn 30. júlí síðastliðinn. 

Rodriguez hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum og þáttaröðum í gegnum árin, en hún sló rækilega í gegn þegar hún fór með aðalhlutverk þáttanna Jane the Virgin á árunum 2014 til 2019. Rodriguez og LoCicero kynntust á tökustað þáttanna árið 2016 og voru trúlofuð tveimur árum síðar. Þau giftu sig árið 2019.

„Þessi afmælisdagur er öðruvísi,“ skrifaði Rodriguez undir myndbandið sem samanstendur af stuttum myndbrotum af leikkonunni ásamt eiginmanni sínum. Í lok myndbandsins heldur Rodriguez á jákvæðu þungunarprófi og hamingjan leynir sér ekki á andliti hjónanna sem brosa sínu skærasta brosi og virðast.

Leikkonan opnaði sig nýlega í hlaðvarpsþættinum Broad Ideas um baráttu sína við sjálfsofnæmissjúkdóminn Hashimoto sem hefur áhrif á skjaldkirtilinn og veldur breytingum á hormónastarfsemi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert