Sonur Rihönnu sprengir krúttskalann

Rihanna og A$AP Rocky tóku á móti syni sínum hinn …
Rihanna og A$AP Rocky tóku á móti syni sínum hinn 13. maí síðastliðinn. AFP

Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky tóku á móti sínu fyrsta barni saman hinn 13. maí síðastliðinn. Þau hafa haldið syni sínum fjarri sviðsljósinu þar til síðastliðinn laugardag þegar Rihanna deildi fyrsta myndskeiðinu af honum á samfélagsmiðlinum TikTok. 

Nú þegar sonur parsins er orðinn rúmlega 7 mánaða gamall birtist fyrsta myndskeiðið af honum þar sem hann brosti skært til móður sinnar sem heyrist í bakgrunninum vera að taka hann upp. „Ertu að reyna að ná í símann hennar mömmu?,“ spyr söngkonan son sinn. 

Aðdáendur parsins hafa beðið spenntir eftir því að sjá frumburðinn og hefur myndskeiðið því hlotið mikla athygli. Frá því að myndskeiðið birtist hafa yfir 16 milljónir horft á það og 4,5 milljónir líkað við það.  

Rihanna og A$AP byrjuðu saman snemma árs 2020, en fyrir það voru þau lengi góðir vinir og gáfu meðal annars út lag saman árið 2012. Þau hafa ekki enn opinberað nafn drengsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert