Hvar á ég að gista í nótt?

Hvar og hvernig viltu gista?
Hvar og hvernig viltu gista? Ljósmynd/Thinkstock

Nú þegar heimagisting hefur rutt sér til rúms er það orðin knýjandi spurning fyrir hvert ferðalag hvers konar gististað á að velja. Þetta snýst ekki lengur um það hvaða hótel eða gistiheimili verður fyrir valinu heldur þarf að spá í hvert eðli ferðarinnar er og hvort annars konar gistimöguleikar, eins og heimagisting eða jafnvel farfuglaheimili henti betur. Val á gistingu veltur gjarnan á eðli ferðarinnar, fjölda ferðalanga og væntingum ferðalangs eða hóps til ferðalagsins hvernig gisting verður fyrir valinu.

Kostirnir við að gista á hóteli eru margir. Öll þjónusta er á staðnum (ætti a.m.k. að vera það) eða í mesta lagi kostar eitt símtal að útvega það sem vantar.

Mjúk dýna og hreint herbergi er dásamleg tilhugsun eftir langa …
Mjúk dýna og hreint herbergi er dásamleg tilhugsun eftir langa ferðadaga Ljósmynd/Thinkstock

Staðsetning hótela (ef þau eru almennileg) er yfirleitt góð og valin út frá helstu kennileitum borga, veitingastöðum og afþreyingu ýmiss konar. Það getur líka borgað sig að gista á hóteli, eða í hótelíbúð, þegar ferðast er með börn. Yfirleitt er auðvelt að græja aukarúm, rúmföt um miðja nótt ef óhapp verður eða hvaðeina sem upp kann að koma. Einnig eru meiri líkur á að hótel bjóði einhvers konar afþreyingu fyrir börn og þá eru þau einnig oft öruggari kostur, þar sem þau verða að uppfylla ákveðna öryggisstaðla.

Hótel getur einnig verið tryggari kostur að mörgu leyti, því þau verða að telja nákvæmlega upp allt sem er innifalið og þjónustan fer eftir tilteknum stöðlum. Við ættum því að vita að hverju við göngum, svona nokkurn veginn allavega.

Gallinn við hótel er að þau geta verið dýr, en með aukinni samkeppni við aðra gistimöguleika undanfarið hefur verð reyndar farið lækkandi á mörgum stöðum.

Kynntu þér málin

Það getur borgað sig að nýta heimagistingu á borð við Airbnb þegar ferðast er í stærri hópum því þar er hægt að leigja heila íbúð eða hús.

Ef þú ert að hugsa um þennan gistimöguleika margborgar sig að setja sig vel inn í málin, skoða nákvæmlega alla skilmála og rýna vel í það sem aðrir hafa skrifað um gestgjafann. Umsagnir eru allt í þessum bransa.

Heimagisting getur líka hentað vel fyrir einstaklinga, einkum ef ætlunin er að dvelja um einhvern tíma á sama stað. Ef fólk er til í deila baðherbergi og eldhúsi þá getur það verið góð hugmynd að leigja herbergi í heimagistingu, þar sem gestgjafinn er heimamaður og er í íbúðinni sjálfur en þú leigir bara herbergi. Þannig er hægt að kynnast menningu staðarins og hafa beinan aðgang að heimamanni sem þekkir umhverfið vel. Þetta er skemmtilegur kostur fyrir einstakling eða jafnvel par.

Fyrir bakpokaferðalanga sem hafa lítið milli handanna eru farfuglaheimili hinn augljósi kostur. Þar er yfirleitt hægt að kynnast öðrum ferðalöngum og kynnast fólki frá öllum heimshornum sem hefur gaman af því að ferðast. En ef þú vilt ekki deila herbergi er betra að spara aðeins lengur fyrir ferðinni og bóka hótel.

Farfuglaheimili geta verið skemmtileg tilbreyting fyrir stórar fjölskyldur
Farfuglaheimili geta verið skemmtileg tilbreyting fyrir stórar fjölskyldur Ljósmynd/Thinkstock

Bókunarmöguleikar eru fjölmargir. Algengt er að fara þá leið að bóka gegnum stórar bókunarsíður, en í mörgum tilvikum er hægt að fá betra verð með því að hringja á staðinn. Þetta er mjög misjafnt eftir löndum, en um að gera að láta á það reyna. Við viljum allavega aldrei borga meira en við þurfum, betra að eiga peninga til að gera eitthvað skemmtilegt í ferðinni. Tvennt er gott að hafa í huga; í fyrsta lagi þarftu að vita hvað þú vilt fá út úr gistingunni og í öðru lagi vita hversu miklu þú vilt eyða í gistingu. Svo vinnurðu út frá þessu og finnur eitthvað sem hentar bæði andanum og buddunni.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert