Viltu búa eins og Barbie?

Í tilefni þess hefur Mattel, fyrirtækið sem framleiðir dúkkuna, opnað sérstaka Barbie-svítu á Hilton hóteli í Santa Fe í Mexíkó. Svítan verður einungis í boði fram í desember og þurfa aðdáendur því að hafa hraðar hendur ætli þeir að njóta þess að búa eins og Barbie um stund. Í svítunni er búið að breyta einu herberginu í útivistarsvæði þar sem gestum býðst að sofa í hjólhýsi að hætti dúkkunnar.

Sérstakur matseðill er einnig í boði á hótelinu og á honum er að finna hjartalaga flatbökur, rauðbleikar kökur og jarðarberjaís, svo fátt eitt sé nefnt.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert