Ubergóð ráð og siðir

Uber getur verið stórsniðugt fyrir þá sem ferðast mikið.
Uber getur verið stórsniðugt fyrir þá sem ferðast mikið. Ljósmynd/Colourbox

Áfangastaðurinn er sleginn inn áður og hægt er að sjá þá bíla sem eru lausir í nágrenninu. Eftir staðfestingu má fylgjast með á skjánum hvar bíllinn er og eftir hversu margar mínútur hann er væntanlegur. Síðan ekur bílstjórinn farþegunum á áfangastað og greiðslan fer fram í gegnum appið, greiðslukort er tengt við það í upphafi. Að lokinni bílferðinni er gestinum boðið að gefa bílstjóranum stjörnur, frá einni upp í fimm, skrifa umsögn og greiða honum þjórfé – allt í gegnum appið.

Þjórfé er víðast hvar á undanhaldi í hinum vestræna heimi. Það er sjálfsagt að greiða afar liprum, þjónustulunduðum bílstjórum þjórfé sem buna út úr sér gagnlegum umbeðnum upplýsingum. Ef um er að ræða „venjulegan“ akstur frá einum stað til annars sleppum við því.

Alltaf 5 stjörnur. Nema auðvitað bílstjórinn hafi verið ókurteis, spilað tónlistina of hátt eða angrar farþegana á annan hátt.

Sleppum því að borða eða drekka í bílnum

Bílstjórinn gefur farþegunum stjörnur/ummæli, muna að haga sér vel.

Fyrir kemur að bílstjóri hætti við ferðina eftir að hafa lagt af stað. Þá rukkar Uber viðskiptavininn um lágmarksupphæð. Þetta er ekki til fyrirmyndar. Sjálfur hef ég nokkrum sinnum lent í þessu. Þá hef ég gert athugasemd og fengið endurgreitt.

Fleiri frábæra pistla og gómsætar uppskriftir má finna á vefsíðu Alberts. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert