Kardashian í fótspor Gylfa og Alexöndru í fríinu

Kim Kardashian og hjónin Gylfi og Alexandra eiga það sameiginlegt …
Kim Kardashian og hjónin Gylfi og Alexandra eiga það sameiginlegt að hafa birt myndir af sér með svínunum á samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Kim Kardashian var í fríi á Bahama-eyjum á dögunum með börnum. Íslenski knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og Alexandra Helga Gylfadóttir trúlofuðu þar sig í fyrra og var Kardashian/West-fjölskyldan greinilega á svipuðum slóðum. 

Gylfi og Alexandra birtu myndir í fyrra þar sem þau léku við villt svín á strönd sem kölluð er Svínaströndin eða Pig Beach. Mannfólk býr ekki á eyjunni en svínin lifa góðu lífi.

Hin nýbökuðu hjón virtust mjög hrifin af svínunum þegar þau hittu þau fyrir rúmlega ári síðan. Kardashian virtist hins vegar vera smeik á myndbandi sem hún birti á samfélagsmiðlum. „Ég var hrædd,“ skrifaði Kardashian á Twitter. 

Á vef ferðavef Bahama-eyja kemur fram að ekki sé vitað nákvæmlega hvernig svínin enduðu á eyjunni. Segja sumir að sjómenn höfðu skilið þau eftir þar, ekki af góðmennsku þó heldur voru þeir með það í huga að koma aftur og elda þau. Aðrir vilja meina að svínin hafi synt úr nálægu skipsbroti. 


 

View this post on Instagram

Can I take the piglet home? 🙈🐷

A post shared by Lexa (@alexandrahelga) on Jul 16, 2018 at 12:04pm PDT

View this post on Instagram

A post shared by Gylfi Sigurdsson (@gylfisig23) on Jul 8, 2018 at 10:43am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert