Hefur þig alltaf langað til Asíu en finnst flugmiðinn þangað of dýr og ferðalagið helst til langt? Örvæntu ekki, það er til ódýrari og fljótlegri leið til þess að upplifa dásemdir álfunnar - og það án þess að flogið sé út fyrir Evrópu.
Ef flogið væri með gesti Asia Gardens blindandi þangað er ólíklegt að þeir myndu átta sig á því að þeir væru staddir á Spáni en ekki í Asíu. Eigendum þessa fimm stjörnu lúxus hótels hefur nefnilega tekist að skapa asíska paradís í aðeins nokkra kílómetra fjarlægð frá Benidorm. Þar sem hugsað hefur verið fyrir hverju einasta smáatriði við hönnun hótelsins og umhverfis þess fá gestir þá upplifun að þeir séu í alvöru staddir í Asíu.
Sem dæmi má nefna þá er hótelið staðsett í 375.000 fermetra aflokuðum garði þar sem finna má um 300 plöntutegundir sem voru sérinnfluttar frá Asíu, þar á meðal fjörgömul bonsai-tré, litríkar orkídeur og ilmandi jasmínplöntur. Starfsfólkið er allt klætt í fatnað í anda heimsálfunnar og maturinn sem boðið er upp á á veitingastöðum hótelsins er aðallega asískur eða indverskur í bland við mat frá Miðjarðarhafinu.
Hótelgarðinum er skipt upp í mörg mismunandi svæði og geta gestir gengið um hann og notið kyrrðarinnar og gróðursins. Vatnaliljur, framandi pálmar og bananaplöntur setja svo punktinn yfir hinn austurlenska arkitektúr, listaverk, fossa, læki og brýr. Í garðinum eru nokkur svæði þar sem börn eru bönnuð og þar þurfa allir að vera hljóðlátir enda er meginmarkmið hótelsins að gestir fari þaðan endurnærðir á bæði sál og líkama. Boðið er upp á tælenskt nudd og ýmsar heilandi meðferðir bæði frá Kína og Indlandi. Þannig er til að mynda hægt að komast bæði í jóga og thai chi. Að sjálfsögðu kostar sitt að gista á þessu fimm stjörnu lúxushóteli en á móti kemur að flugfarið er ódýrara til Spánar en til Asíu og ferðatíminn mun styttri.