Hvert verður flogið í sumar?

Túristi birtir yfirlit yfir þá áfangastaði sem flogið verður til frá Íslandi næsta sumar. Alls verða í boði reglulegar ferðir til rétt rúmlega sextíu erlendra áfangastaða í sumar. Tveir nýir áfangastaðir bætast við, Nantes í Frakklandi og Verona á Ítalíu.

Úrvalið er aðeins minna en fyrra en í samanburði við sumarmánuðina 2017 og 2018  er samdrátturinn verulegur. Þá var nefnilega hægt að fljúga frá landinu til um níutíu áfangastaða segir í frétt Túrista.

Hér er hægt að lesa frétt Túrista í heild og sjá hvaða áfangastaðir eru í boði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert