Svífa yfir Íslandi eins og fugl

Eva Eiríksdóttir markaðsstjóri Fly Over Iceland.
Eva Eiríksdóttir markaðsstjóri Fly Over Iceland. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þótt sýningin FlyOver Iceland hafi fyrst og fremst verið hönnuð með erlenda ferðamenn í huga kom fljótt í ljós að Íslendingum þykir upplifunin ekki síður merkileg. „Ég verð að játa að ég er svolítið hrifnæm að eðlisfari, en þegar ég fékk að sjá Ísland með þessum hætti í fyrsta sinn hætti ég ekki að tárast, klökk yfir því hvað landið okkar er fallegt og ótrúlegt,“ segir Eva Eiríksdóttir. „Þannig eru viðbrögðin sem við fáum frá mörgum Íslenskum gestum: Þeir eru slegnir yfir fegurð landsins og margt í sýningunni sem kemur þeim á óvart.“

Eva er markaðsstjóri FlyOver Iceland sem opnaði úti á Granda síðasta sumar. Um er að ræða gagnvirka hátæknisýningu sem þróuð var í samstarfi við hæfustu erlendu sérfræðinga og sýnir gestum sögu landsins auk þess að fara með þá í n.k. „flugferð“ á milli náttúruperla. Til að gefa lesendum hugmynd um hversu mikið var lagt í sýninguna þá tók rösklega tvö ár að byggja sérstakt sýningarhús úti á Fiskislóð, en alþjóðlegt tökulið var að störfum í 18 mánuði við að mynda landið í bak og fyrir úr þyrlu. „Veðurfarið var ekki alltaf að hjálpa okkur og þurfti þrjár eða fjórar tökuskorpur til að ná öllu myndefninu og öllum árstíðum,“ útskýrir Eva en stofnkostnaður FlyOver Iceland var um 3,5 milljarðar króna. Að rekstrinum standa bæði innlendir og erlendir aðilar og verkefnið því ein stærsta erlenda fjárfestingin í sögu íslenskrar ferðaþjónustu.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ilmur af grasi og blómum

Sýningin er þrískipt og byrjar á tveimur forsýningum sem kynna land og þjóð. „Þar er m.a. greint frá því hvernig forfeður okkar þurftu að búa við erfiðar aðstæður og læra að takast á við náttúruöflin. Þá tekur við sýning þar sem tröllkonan Sú Vitra segir frá samspili manna og náttúru á Íslandi,“ útskýrir Eva.

Loks eru gestir leiddir inn í risastóran sal fyrir þriðju sýninguna og fá sér sæti í sérstakri vél. Sætin eru á tveimur hæðum og sitja allir á fremsta bekk. Fyrir framan sætin er 280 fermetra kúptur skjár sem umlykur gesti og hreyfast sætin í takt við það sem ber fyrir augu á skjánum en upplifunin á að líkjast því að svífa yfir landinu ein og fugl. „Við virkjum öll skilningarvitin og þegar t.d. flogið er í gegnum ský eða upp fossa þá finna gestir mistrið á húðinni, og eins finna þeir gras- og blómalyktina þegar flogið er yfir tún og heiðar.“

Aðalsýningin blandar saman kunnuglegum og minna þekktum áfangastöðum og segir Eva að jafnvel þeir sem hafa verið duglegir að ferðast um landið ættu að sjá eitthvað alveg nýtt. „Við fengum t.d. til okkar fjallgöngugarpa sem fóru út af sýningunni mjög uppveðraðir, hafandi fundið nýja staði til að heimsækja.“

Sýningarnar þrjár taka samtals um 30-35 mínútur og býður FlyOver Iceland upp á tilboð sem eru sniðin að ferðagjöf stjórnvalda. Er annars vegar um að ræða aðgangsmiða fyrir fullorðinn og barn, með stafrænni mynd, á 5.000 kr. og hins vegar kaffihúsapakka á sama verði þar sem gestir fá aðgangsmiða og svo kaffi og bakkelsi í lok sýningar.

Sælureitur úti á Granda

Eva mælir með að gestir geri heimsókn í FlyOver Iceland að einum af hápunktum dagsferðar út á Granda en þar er margt skemmtilegt að sjá á hæfilega smáu svæði, allt í göngufæri. „Grandinn er hverfi sem leynir á sér og hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma. Hér má finna söfn á heimsmælikvarða, s.s. Sjóminjasafnið, Sagnasafnið, Hvalasýninguna, Norðurljósasetrið og skoða listasýningar í Marshallhúsinu. Súkkulaðiverksmiðja Omnom tekur líka vel á móti gestum og sýnir þeim hvernig framleiðslan fer fram. Svo eru hér ýmsar búðir fyrir sælkera, og ísbúðin Valdís í sérstöku uppáhaldi hjá mörgum.“ 

Eva Eiríksdóttir markaðsstjóri Fly Over Iceland.
Eva Eiríksdóttir markaðsstjóri Fly Over Iceland. mbl.is/Kristinn Magnússon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert