Horfðu á norðurljósin úr svefnherberginu

Nú er tími norðurljósanna.
Nú er tími norðurljósanna.

Nú er norðurljósatímabilið hafið hér á Íslandi. Að skoða norðurljósin er alveg ókeypis og hægt að gera hvar sem er en það getur líka verið notalegt að þurfa ekki að sitja frosinn úti í náttúrunni við það. 

Norðurljósin sjást líka best þegar maður er fjarri ljósunum frá bæjum og því góð hugmynd að skella sér út í sveit til að skoða þau. Það sem væri þó hugglegast er að liggja í þægilegu, hlýju rúmi og horfa upp í himininn prýddan norðurljósunum. Á Íslandi eru alla vega tveir slíkir staðir þar sem þú getur notið norðurljósanna í hlýjunni. 

Panorama Glass Logde

Þetta er hinn fullkomni staður til þess að njóta norðurljósanna. Svefn­skál­inn er úr gleri og býður upp á fjöl­breytt tæki­færi til ljós­mynd­un­ar.

Buuble

Búbbluhúsin hjá Buuble eru frábær til þess að njóta norðurljósanna á einstakan hátt. 

View this post on Instagram

The 5 million stars. When do you plan to visit to count them all?

A post shared by The 5 Million Star Hotel (@bubbleiceland) on Sep 11, 2020 at 10:43am PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert