Ótrúlegt íshótel í Svíþjóð

Um -5 til -8 gráður eru í herbergjunum á hótelinu.
Um -5 til -8 gráður eru í herbergjunum á hótelinu. Ljósmynd/Icehotel

Í Jukkasjärvi í norður Svíþjóð má finna einstakt íshótel. Herbergi hótelsins eru búin til úr ísskúlptúr og inni í herbergjunum er um -5 til -8 gráðu frost.

Hönnuður herbergjanna er ítalinn Luca Roncoroni sem ólst við töluvert hlýrra loftslag en er að finna í norðurhluta Svíþjóðar. Roncoroni ólst upp við Como vatn á Ítalíu og kynntist ískúlptúragerð þegar hann var fór sem skiptinemi í arkitektarnámi sínu til Ósló í Noregi.

Þá féll hann algjörlega fyrir snjónum í Noregi og ákvað að flytja þangað árið 1995. 

Á íshótelinu í Svíþjóð er líka að finna hlý herbergi og þar eru sánur, heitir pottar og líka kaldur pottur. 

Hótelið er einstakt.
Hótelið er einstakt. Ljósmynd/Icehotel
Ljósmynd/Icehotel
Ljósmynd/Icehotel
Það eru líka hlýherbergi í boði.
Það eru líka hlýherbergi í boði. Ljósmynd/Icehotel
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert