Tólf góðar gönguleiðir

Í Heiðmörk.
Í Heiðmörk. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Víða um land má finna góðar gönguleiðir. Fjölmörg sveitarfélög hafa unnið frábært starf í uppbyggingu göngu- og útivistarsvæða og stikað og merkt gönguleiðir í sinni byggð. Eins hafa ferðafélög og einkaaðilar lagt sitt af mörkum og komið að uppbyggingu útivistarsvæða. Rannsóknir sýna að vel skipulögð og aðgengileg útivistarsvæði eru mikilvægur hluti af lífsgæðum íbúa.

Ferðafélag Íslands og Valtitor hafa lengi átt samstarf og staðið fyrir uppsetningu á gönguleiðaskiltum á fjölförnum gönguleiðum bæði í byggð og óbyggðum. Það þarf þó ekki alltaf að leita langt yfir skammt og bestu gönguferðirnar eru oft heiman frá og í nærumhverfinu. Þegar ferðast er um landið má finna góðar gönguleiðir þar sem upphafsstaður er aðgengilegur í byggð eða við þéttbýli.

Álftanes og Bessastaðatjörn

Góður upphafs- og endastaður er bílastæðið við Kasthúsatjörn. Gengið er meðfram sjávarsíðunni og umhverfis Bessastaðatjörn. Hressandi ganga um ósnortnar fjörur, með seltuilm í lofti, sjávarnið í eyrum og ekki spillir víðsýnið. Leiðin er rúmlega 6 km og gengið á stígum alla leið.

Þrastaskógur

Í Þrastaskógi er fjöldi merktra aðgengilegra göngustíga og vegalengdir við allra hæfi. Lengsti stígurinn er 2,6 km en aðrar merktar leiðir eru frá um 50 til tæplega 800 m langar og víða eru leiktæki fyrir börn. Þrastaskógur er í einstaklega fallegu umhverfi við Sogið í um klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu, í eigu Ungmennafélags Íslands.

Seltjarnarnes

Lagt á bílastæðinu við Gróttu og gengið þar í fjörunni og síðan umhverfis golfvöll Seltjarnarness, út á Búðagranda og Bakkagranda, að Nestjörn og aftur að bílastæði. Gönguleiðin liggur um friðsælt og fallegt svæði við sjóinn. Gengið er um malbiksstíga, fjöru og túngötur. Leiðin er um 3,5 km.

Dimmuborgir við Mývatn

Dimmuborgir austan Mývatns draga nafn sitt af einstökum hraunmyndunum og þær eru friðlýst náttúruvætti. Í Dimmuborgum eru vel merktar gönguleiðir við allra hæfi og þar má stunda náttúruskoðun á öllum tímum ársins. Lengsti stígurinn í Dimmuborgum, Kirkjuhringur, er u.þ.b. 2,3 km langur. Frá bílastæði í Dimmuborgum er einnig hægt að ganga á Hverfell/Hverfjall og njóta þaðan útsýnis yfir Mývatnssveit.

Búrfell og Búrfellsgjá

Gangan hefst frá bílastæði við Heiðmerkurveg, suðaustan við Vífilsstaðahlíð í Garðabæ. Þar er skilti sem skýrir leiðina, hversu löng hún er og helstu kennileiti. Gönguleiðin er um 3,6 km og mjög þægileg yfirferðar. Þegar komið er á Búrfell er leiðin greið ofan í gíginn. Síðan er gengin sama leið til baka að bílastæði.

Búrfellsgjá.
Búrfellsgjá. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Haukafell austan við Hornafjörð

Haukafell er mjög fjölskylduvænt útivistarsvæði á Mýrum, austan við Hornafjörð. Afleggjari frá þjóðvegi 1 er skammt sunnan við bæinn Viðborðssel. Gönguleiðin er um 2,5 km hringleið og best er að byrja ofan tjaldsvæðis og ganga upp hlíðina vestanverða, austur yfir heiðina við Hálsdalsá og niður með henni. Fallegir fossar og útsýni yfir Fláajökul, Kolgrafardal og Mýrar.

Glanni og Paradísarlaut í Borgarfirði

Gönguferð að Glanna og í Paradísarlaut er ekki löng en afar skemmtileg og náttúrufegurðin einstök. Skammt sunnan við Bifröst er beygt niður af þjóðvegi 1 í átt að Norðurá. Gangan er um 2 km og hefst á bílastæðinu við golfskálann. Göngustígurinn er greinilegur og vel við haldið og leiðin hentar öllu göngufæru fólki. Fossinn Glanni í Norðurá er einstök náttúrusmíð og sagður vera dvalarstaður álfa og dverga. Glanni merkir birta eða skin.

Sandafell við Þingeyri

Sandafell er lítið fell fyrir ofan Þingeyri (367 m) við Dýrafjörð. Hægt er að ganga upp fellið frá Þingeyri eða frá þjóðveginum. Á toppnum er útsýnisskífa með öllum helstu kennileitum sem ber fyrir augu og þaðan er einstakt útsýni. Hækkun er um 170 m og gönguleiðin frá gamla þjóðveginum er um það bil 3 km báðar leiðir.

Varðan á Ásfjalli.
Varðan á Ásfjalli. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Ástjörn og Ásfjall, Hafnarfirði

Gangan hefst við Haukahúsið á Ásvöllum og er gengið vestan íþróttasvæðis niður af tengibrú stígsins sem liggur umhverfis Ástjörn og að Ásfjalli. Á fjallinu er falleg, vel hlaðin varða sem gaman er að príla á. Útsýni af Ásfjalli er stórbrotið þó fjallið sé ekki hátt.

Frá Haukahúsi um Ásfjall og Ástjörn eru um 3,9 km.

Æsustaðafjall og Reykjafell – Mosfellsbær

Ofan við Mosfellsbæ leynist stutt og skemmtileg gönguleið sem hentar frábærlega sem fjölskylduganga eða góðviðrisrölt eftir vinnu. Ekið er upp Mosfellsdal og sveigt til hægri eftir afleggjara merktum Hlaðgerðarkoti. Fljótlega er síðan aftur beygt til hægri inn að smáhýsabyggðinni í Skammadal og ekið þar til komið er að litlu bílastæði. Upphaf leiðarinnar er stikuð og best er að byrja á að ganga á Æsustaðafjall og þaðan yfir á Reykjafellið, um 4,8 km hringleið.

Hafrafell og Reykjaborg við Hafravatn

Fellið ofan Hafravatns er ýmist nefnt Hafrahlíð (245 m) eða Hafrafell. Þegar gengið er á Hafrafell er einnig tilvalið að halda áfram og ganga á Reykjaborg (286 m) við hlið Hafrafells. Fellin tvö eru ekki há eða brött og því tilvalin fjölskylduganga. Gangan hefst á bílastæðinu við Hafrafellsrétt eftir slóða í gegnum skógræktina. Slóðinn skiptist fljótlega í tvo og vinstri slóðinn valinn. Þegar komið er á veginn er farið þvert yfir hann og slóðanum fylgt á tind Hafrafells og þaðan yfir á Reykjaborg. Hringurinn um Hafrahlíð og Reykjaborg er um 7,8 km.

Heiðmörk

Heiðmörk er stærsta útivistarsvæðið á höfuðborgarsvæðinu og eitt það vinsælasta. Þar finna allir góða gönguleið við hæfi. Í gegnum tíðina hafa ótal göngu- og reiðstígar verið lagðir um svæðið og glæsileg aðstaða byggð upp fyrir fjölskyldufólk og aðra sem vilja gera sér glaðan dag í skóginum. Í Heiðmörk eru áhugaverðar jarðmyndanir, viðkvæmt votlendi og lyngmói. Dýralíf er afar fjölbreytt á þessum slóðum og gildir þá einu hvort áhuginn beinist að spendýrum, vatnalífverum eða fuglum himinsins.

Í Heiðmörk.
Í Heiðmörk. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert