Edda Falak, íþróttakona og áhrifavaldur, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, fóru saman á hótel í gær. Leið þeirra lá vestur í Reykholt þar sem parið, sem er nýbyrjað saman aftur, gisti á Fosshóteli.
Af myndum af dæma virðast Edda og Kristján hafa gist í svítunni með stofu og einkapotti á veröndinni. Edda og Kristján hafa þó varla borgað fullt verð fyrir svítuna þar sem það kom vel fram að um samstarf væri að ræða.
„Hótel Edda,“ skrifaði Edda í gríni við mynd af sér á Instagram.