Flugdólgur uppspretta fjölda brandara

Grínistinn The Real Spark leikur flugþjónn úr vél Frontier sem …
Grínistinn The Real Spark leikur flugþjónn úr vél Frontier sem límdi niður flugdólg á dögunum. Skjáskot/Youtube

Atvik sem kom upp í flugvél bandaríska flugfélagsins Frontier í lok júlí síðastliðinn hefur vakið mikla athygli undanfarnar vikur. Atvikið, þar sem karlmaður var límdur niður við sæti sitt eftir að hafa látið öllum illum látum, hefur í kjölfarið orðið uppspretta fjölda brandara.

Grínistinn The Real Spark gerði góðlátlegt grín að atvikinu á dögunum þegar hann þóttist vera einn af flugþjónunum sem þurftu að takast á við flugdólginn.

Í viðtalinu lýsir The Real Spark, sem kallar sig Alfredo Rivera í viðtalinu, atvikinu í flugi Frontier nokkuð ítarlega. Viðtalið er afar kómískt og gaman að sjá að Bandaríkjamenn hafa húmorinn að leiðarljósi á þessum undarlegu tímum í ferðaþjónustunni. 

Í upphafi héldu margir að Rivera hefði raunverulega verið flugþjónn um borð í vél Frontier, en þegar betur var að gáð reyndist svo ekki vera. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert