Britney á bleiku skýi fór beint í frí

Poppprinsessan Britney Spears er loksins frjáls eins og fuglinn.
Poppprinsessan Britney Spears er loksins frjáls eins og fuglinn. AFP

Söngkonan Britney Spears er hátt uppi í skýjunum og sigri hrósandi eftir að hafa endurheimt lögræði sitt frá föður sínum, Jamie Spears.

Samkvæmt upplýsingum frá People var Britney sjálf ekki viðstödd þegar faðir hennar var sviptur sjálfræði hennar. Ákvað hún frekar að fara í langþráð frí frá öllum fjölskyldu harmleiknum ásamt unnusta sínum, Sam Ashgari.  

Nokkrum klukkustundum eftir að dómari í Bandaríkjunum hafði svipt föður hennar forræðinu deildi hún myndum og myndskeiðum á Instagram af sjálfri sér fljúga flugvél í fyrsta sinn. Sést á myndskeiðunum hvernig hún heldur um stýripinna flugvélarinnar og fylgist með logandi ljósunum í stjórnborðinu undir handleiðslu reynds flugmanns.  

„Ég svíf um á bleiku skýi núna," skrifaði hún við myndskeiðið. „Fyrsta skipti sem ég flýg flugvél og jesús minn hvað ég var hrædd. Verið góð við hvort annað falleg fólk. Fleiri myndir koma fljótlega," bætti hún svo við ásamt viðeigandi lyndistáknum. Virðast turtildúfurnar vera að njóta lífsins á sólríkum og suðrænum slóðum þar sem sjá má glitta í hvítar strendur og pálmatré á myndunum.

Frelsi Britney er nánast í höfn, en þó hefur hún ekki endurheimt það að fullu. Skipaður hefur verið annar lögráðamaður sem tekið hefur við af föður hennar og fer með forræðið. Lögmenn Britney hafa þó lagt fram tillögu þess eðlis að hún sé fullfær um að fara sjálf með sitt eigið forræði og verður sú tillaga tekin til skoðunar hjá löggæsluliðum í Bandaríkjunum á næstu mánuðum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert