Ferðaráð Hollywoodstjörnu

Andie MacDowell ferðast mikið.
Andie MacDowell ferðast mikið. AFP

Leikkonan Andie MacDowell ferðast mikið og segist eiga erfitt með að ferðast á almennu farrými eftir að hún prófaði að ferðast í lúxussæti. Hún er þó ekki með neina stjörnustæla og mætir tímanlega á flugvöllinn og ekki í neinum tuskulegum íþróttagalla. MacDowell segir frá því hvernig hún ferðast á vef Condé Nast Traveller. 

Á flugvellinum

MacDowell segist mæta snemma á flugvöllinn, ef hún gerir það ekki fær hún kvíða. „Ef þeir segja mér að mæta tveimur tímum fyrr þá mæti ég tveimur tímum fyrr,“ segir leikkonan, sem fer eftir öllum reglum. Hún tekur oft með sér hollan mat í vélina. Hún er heppin og fer í betri stofuna fyrir alþjóðlegt flug og þá fær hún sér vínglas og reynir að skemmta sér vel. „Ég klæði mig líka upp fyrir flug. Ég er ekki ein af þeim sem klæðast íþróttagalla.“

Handfarangur

Leikkonan tekur með sér rakakrem í handfarangur enda segist hún vera með þurra húð. Hún segist líka taka farða til þess að mála sig fyrir lendingu. Hún setur til dæmis á sig kinnalit, varalit og maskara. Langt flug frá Los Angeles til Evrópu reynist henni erfitt þar. Þá passar hún að drekka nóg og sérstaklega ef hún fær sér vín. 

Andie MacDowell í París.
Andie MacDowell í París. AFP

Fyrsta farrými

Stjarnan byrjaði ferilinn sem fyrirsæta og þrátt fyrir að hún ferðist um á fyrsta farrými í dag hefur það ekki alltaf verið þannig. Hún segir að það hafi verið mjög mikil heppni ef það voru auð sæti í fyrsta farrými og hún var færð framar í vélina. Hún man ekki nákvæmlega hvenær hún flaug fyrst í dýrara farrými. „En ég verð að segja: þegar þú hefur gert það er erfitt að fara til baka. Það er bara óþægilegt þegar þú hefur prófað að liggja.“

Að drepa tímann í flugi

„Ég horfi á svo margar myndir. Ég reyni að finna eitthvað sem ég hef misst af og er mjög spennt að sjá. Ef ég hef verið að vinna nýt ég þess líka að slaka á í flugvélinni,“ segir MacDowell sem horfir kannski á fimm myndir í einni flugferð. 

Þegar stjarnan fer í frí

Flestar flugferðir MacDowell tengjast vinnu. Áður fyrr reyndi hún að tengja saman vinnu og frí. Þegar hún skipuleggur ferðir sem eru eingöngu frí reynir hún að gera eitthvað sérstakt í stað þess að hanga bara og slaka á. „Ég fór til Indlands með vini mínum og við vorum mjög upptekin alla daga. Frá morgni til kvölds skoðuðum við okkur um. Þannig ferðir kann ég vel að meta. Ég er ekki manneskja sem slakar á.“

Það mikilvægasta á hótelinu

Leikkonan vill fá frítt kaffi á hótelinu. Hún segist þurfa að borga fyrir kaffibollann ef hún er á of fínu hóteli. „Ég kann mjög vel við Marriott af því þar fæ ég fría kaffið mitt. Ég er líka fær um að ná í fötin úr hreinsuninni. Mér finnst það vera mesta peningasóunin á þessum fínu hótelum.“

Andie MacDowell.
Andie MacDowell. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert