Tyson ekki ákærður fyrir ofbeldi í flugvél

Hefaleikakappinn Mike Tyson slapp í þetta sinn.
Hefaleikakappinn Mike Tyson slapp í þetta sinn. AFP

Hnefaleikakappinn Mike Tyson verður ekki ákærður fyrir að láta höggin dynja á öðrum flugfarþega. At­vikið átti sér stað í flug­vél sem var á leið frá San Francisco til Flórída i apríl. 

Saksóknari ákvað að gefa ekki út ákæru í málinu og lét málið niður falla vegna aðstæðna sem leiddu til atviksins. Var þar með tekið inn í myndina hegðun fórnarlambsins sem leiddi til ofbeldis Tyson og samskipti Tyson og fórnarlambsins. Aðilar málsins vildu auk þess ekki aðhafast meira í málinu. 

Undanfari málsins var að tveir karl­menn höfðu komið auga á Ty­son á leið inn í vél­ina og spjölluðu stutt­lega við hann. Á ein­hverj­um tímapukti fékk hne­fa­leikakapp­inn fyrr­ver­andi nóg af þeim fé­lög­um sem reyndu að tala við hann linnu­laust og lét hnef­ana tala.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Tyson kemst í fréttir fyrir ofbeldi og óæskilega hegðun. Hann er þekktur fyrir að bíta eyra mótherja síns, Evander Holyfields, árið 1997. Hann fékk þriggja ára fangelsisvist árið 1992 fyrir nauðgun. Árið 2007 viðurkenndi hann kókaínfíkn. 

Mike Tyson.
Mike Tyson. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert