Topplaus og nýtrúlofuð á Ibiza

Vick Hope og Calvin Harris.
Vick Hope og Calvin Harris. Samsett mynd

Ástin svífur yfir vötnum á Ibiza þar sem fjölmiðlakonan Vick Hope og tónlistarmaðurinn Calvin Harris eru stödd um þessar mundir. Lífið virðist leika við parið í rómantísku sólarlandaferðinni en slefið hefur varla slitnað á milli þeirra miðað við myndir sem fréttamiðillinn Daily Mail hefur birt. Þar má sjá parið deila ástríðufullum kossum í gríð og erg á meðan það naut sín við strandlengjuna á Ibiza.

Parið staðfesti trúlofun sína fyrir tveimur vikum síðan, aðeins einum mánuði eftir að þau opinberuðu ástarsamband sitt. 

Hope lét það vera að klæðast samstæðum sundfötum, heldur klæddist hún einungis skærgulum bikiníbuxum. Topplaus og töfrandi átti hún góðar stundir á ströndinni með nýorðnum unnusta sínum, sem klæddist síðum sundstuttbuxum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert