Vök Baths er handhafi Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar árið 2022, en Samtök ferðaþjónustunnar afhenda verðlaunin á afmælisdegi samtakanna, 11. nóvember ár hvert. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Vök Baths verðlaunin við hátíðlega athöfn í Hörpu í dag.
SAF afhenda Nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan samtakanna til nýsköpunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í nítjánda skipti sem SAF veita nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar en þetta árið bárust 14 tilnefningar í samkeppninni um verðlaunin.
Vök Baths eru heitar laugar sem staðsettar eru á bakka Urriðavatns við Egilsstaði á Austurlandi. Böðin samanstanda af tveimur fljótandi sjóndeildarlaugum, einu sinnar tegundar á Íslandi, tveimur heitum laugum á landi, vaðlaug, eimbaði, köldum úða göngum og veitingastaðnum Vök Bistro.
Vök Baths dregur nafn sitt af heitum vökum sem birtust reglulega á ísi lögðu Urriðavatninu vegna jarðhita sem streymdi upp á yfirborðið. Fljótandi laugarnar, eða „vakirnar“, sem nú liggja í vatninu hafa þannig sama form og þær sem mynduðust á ísi lögðu vatninu.
Gestum Vök Baths býðst ekki bara að baða sig í heitu laugunum og köldu Urriðavatninu því í móttöku staðarins er tebar þar sem hægt er að gæða sér á te sem gert er úr jurtum úr nágrenninu og blandað við heitt vatnið sem kemur beint úr jörðinni.
Hönnun staðarins endurspeglar þema náttúrunnar í kring og leikur lerki þar lykilhlutverk sem allt var sótt í Hallormsstaðaskóg, elsta þjóðskóg Íslands. Mikil áhersla er lögð á að sækja í staðbundin hráefni þar sem unnt er. Má þar nefna lífrænt ræktaðar jurtir frá Vallanesi á tebarnum og bjóra sem framleiddir eru í samstarfi við brugghúsið Austra.
Vök Baths er mikilvæg og ánægjuleg nýjung fyrir Austurland. Staðurinn hefur bæði mikið aðdráttarafl fyrir erlenda sem innlenda ferðamenn en er um leið nýjung í þjónustu á svæðinu sem færir aukin lífsgæði til heimamanna og nærsveitunga.
„Við hjá Vök Baths erum virkilega stolt og ánægð með að hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar 2022,“ segir Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Vök Baths. „Vök Baths er mjög gott dæmi um mikilvægi þess að við hugsum ekki aðeins um það að dreifa ferðamönnum um landið heldur að dreifa fjárfestingum og uppbyggingu um landið. Fjárfesting og
uppbygging sem þessi laðar ferðamenn hvaðanæva að til þess að heimsækja Austurland. Þeir eru líklegri til að staldra við og nýta þá þjónustu sem þar er í boði og kynna sér hvað samfélagið á Austurlandi hefur upp á að bjóða. Það að hljóta Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar veitir okkur góðan byr til að gera enn betur.“
Venju samkvæmt tilnefndi dómnefnd nýsköpunarverðlaunanna fyrirtæki sem hlaut Nýsköpunarviðurkenningu ferðaþjónustunnar, en það voru Hopp Reykjavík og Höldur – Bílaleiga Akureyrar sem hlutu viðurkenningu fyrir nýsköpunarverkefnið Hopp deilibílar.
Dómnefnd Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar skipuðu Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF sem jafnframt var formaður dómnefndar, Hrönn Greipsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, og Eyþór Ívar Jónsson, stofnandi og forseti Akademias.
Tilnefningarnar til Nýsköpunarverðlauna ferðaþjónustunnar endurspegla mikla grósku og nýsköpun í ferðaþjónustu um allt land. Hugmyndaauðgi, stórhugur og fagmennska einkennir mörg þau fyrirtæki sem tilnefnd voru. Nefndarmenn voru þó einróma um að handhafi verðlaunanna í ár sé Vök Baths.
Er þetta í 19. skipti sem Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar voru afhent, en verðlaunahafar til þessa hafa verið:
2022 - Vök Baths
2021 - Icelandic Lava Show
2020 - Íslensk ferðaþjónusta í heild
2019 - Sjóböðin Húsavík
2018 - Bjórböðin á Árskógssandi
2017 - Friðheimar í Bláskógabyggð
2016 - Óbyggðasetur Íslands
2015 - Into The Glacier
2014 - Gestastofan Þorvaldseyri
2013 - Saga Travel
2012 - Pink Iceland
2011 - KEX hostel
2010 - Íslenskir fjallaleiðsögumenn
2009 - Fuglasafn Sigurgeirs í Mývatnssveit
2008 - Menningarsetrið Þórbergssetur, Hala í Suðursveit
2007 - Norðursigling – Húsavík
2006 - Landnámssetur Íslands
2005 - Adrenalín.is, VEG Guesthouse á Suðureyri og Fjord Fishing
2004 - Sel Hótel Mývatn og Hótel Aldan